Við höfum öll innra barn innra með okkur sem þráir að vera elskað og öruggt. Það sem ég hef lært aftur og aftur er hversu mikilvægt það er að vingast við þetta innra barn, svo það fái að vera partur af okkar lífi núna þegar við erum orðin fullorðin. Innra barnið er það sem lærir … Lesa áfram „Tímabil innra barnsins og orðin sem færa hlýju“
Flokkur: Almennt
Aftur að innri gagnrýnandanum
Ég er sífellt að fara til baka í gömul verkfæri, enduruppgötva sama hlutinn aftur og aftur. Ég er síleitandi, því mig langar að öðlast meira tilfinningalegt frelsi sem virðist vera það sem ég á erfiðast með. Að gefa mér leyfi aftur til þess að upplifa meira. Ég rakst því aftur á bókina hans Pete Walker, … Lesa áfram „Aftur að innri gagnrýnandanum“
Markaleysi gagnvart hugsunum
Ég er nýbúin að átta mig á því að ég hef þróað með mér ákveðið innra markaleysi gagnvart eigin hugsunum. Sem barn þá leið mér innst innra með mér eins og ég þyrfti að laga mig til þess að verða nóg. Þrátt fyrir að þau skilaboð kæmu ekki alls staðar frá. En í kjölfar þess … Lesa áfram „Markaleysi gagnvart hugsunum“
Hvernig góðu dagarnir geta verið dæmdir
Svo ótrúlega mikilvægt að hafa í huga ❤ Það sést ekki utan á fólki hvernig því líður og hvað það er að ganga í gegnum og við höfum mismunandi orku fyrir það hvernig við hlúum að okkur sjálfum hvern dag ❤ Ég held að margir geti tengt við þessa hræðslu að vera: A) dæmd í … Lesa áfram „Hvernig góðu dagarnir geta verið dæmdir“
Pressa
Það er einhvað að kalla á að ég skrifi um þetta. Ég tek mér oft frí frá þessari síðu því ég set stundum alltof mikla pressu á sjálfa mig hvað varðar mína batavinnu og það ferli sem það felur í sér. Ég er búin að mæta sjálfri mér aftur og aftur í því að einhvað … Lesa áfram „Pressa“
Það „má“
Ég veit ekki hversu oft ég finn mig í þeim sporum að reyna ómeðvitað að koma í veg fyrir að vera séð þegar ég upplifi mig smáa og varnarlausa í hvers konar aðstæðum. Ég byrja að þilja upp setningar til þess að róa mig og halda mér örlítið á jörðinni. Ég næ að komast í … Lesa áfram „Það „má““
Ég er að læra…
Ef það er yfirþyrmandi að segja við mig „ég elska þig“ til að róa huga og hjarta, þá finnst mér gott að breyta því yfir í „ég er að læra að elska mig“ eða „ég er að læra að elska þig (beint til mín)“. Vegna þess að hugurinn upplifir mig ekkert endilega örugga þegar ég … Lesa áfram „Ég er að læra…“
Hvernig leyfum við okkur að finna?
Ath: Passið uppá að vera í öruggu umhverfi og með það hugarfar að hugurinn reynir allt til þess að ýta okkur frá því að finna og upplifa ákveðnar tilfinningar sem við höfum lært að hafna, flýja, forðast og deifa. Hvað sem kemur upp í hugann verður háværara og háværara til þess að reyna að ýta … Lesa áfram „Hvernig leyfum við okkur að finna?“
Mótstaða og tilfinningasár
Um leið og ég finn mótstöðu yfir því að finna það sem ég finn, þá veit ég að það er sár sem ég þarf að vera hjá og anda mig í gegnum (í öruggu umhverfi) ♡ það gerist í alls konar lögum og skrefum og það verður verra áður en það verður betra, svo það … Lesa áfram „Mótstaða og tilfinningasár“
Hvað er emotional flashback?
Það er langt síðan ég rakst á Pete Walker og allt sem hann talar um varðandi CPTSD (complex post traumatic stress disorder) og angering. En eitt það mikilvægasta sem ég lærði um og gleymdi alltaf að skrifa um var sú vitneskja að emotional flashback gæti átt sér stað og er að eiga sér stað dags … Lesa áfram „Hvað er emotional flashback?“